Menu Close

Rakstur

Karlmaður rakar sig að meðaltali um það bil 20.000 sinnum yfir ævina sem eru samtals um fimm mánuðir. Húðumhirða karlmanna snýst að stórum hluta um rakstur og margir raka sig jafnvel daglega. Rakstur er mikið áreiti fyrir húðina og getur valdið viðkvæmni,  rakstursbólum og þurrki og þurr húð eldist mun fyrr. Þrátt fyrir síendurtekinn rakstur er ekki sjálfgefið að allir viti hvaða aðferð sé best að beita til að koma í veg fyrir óþægindi. Ýmis góð ráð eru til að gera raksturinn auðveldari og  koma í veg fyrir þurrk og viðkvæmni.

Mikilvægt er að velja vönduð og góð áhöld við raksturinn og vörur sem innihalda sérvalin efni og eru án alkóhóls eða efna sem loka húðinni og hafa þurrkandi áhrif.

Mælt er með að nota vandaða raksköfu með heilu, beittu blaði og skipta reglulega eða eftir 4-5 skipti. Skörðótt og bitlaust blað er helsta ástæðan fyrir skurðum og óþægilegum rakstri.

Rakstursburstar eru margskonar og mjög misjafnir að gæðum en greifingjahár henta best og eru langvinsælust.

Huga þarf vel að hreinlæti og hreinsa burstann og sköfuna eftir hverja notkun. Burstann er best að skola vel, hrista mesta vatnið úr og geyma hann með hárin hangandi niður og láta þorna. Rakur bursti með rakstursefni getur verið gróðrastía fyrir bakteríur.

Grunnurinn að góðum rakstri er að undirbúa húðina vel og best að hafa hana heita til að mýkja skeggið og opna húðholur. Áður en raksturskremið er sett á húðina er gott að bera nokkra dropa af  rakstursolíu (pre-shave oil) sem myndar vörn á milli húðar og rakblaðs til að fá mýkri og betri rakstur. Olían kemur í veg fyrir ertingu eftir rakstur og hefur mýkjandi áhrif á húð og skegg.

Raksturskremið er hægt að bera á með fingrum en rakstursburstinn mýkir og örvar húðina og ýfir betur skegghárin og þannig verður raksturinn auðveldari.

Ávallt skal raka í sömu átt og skegghárin vaxa nema ef hárin eru einstaklega gróf þá getur verið nauðsynlegt að raka á móti hárvexti eftir að búið er að raka í sömu átt. Algengt er að karlmenn fái inngróin hár og helsta ástæðan sú að rakað er á móti skeggvextinum.

Eftir rakstur er gott ráð að setja kalt vatn á húðina til að draga saman húðholur og þá bera á krem eftir rakstur (Aftershave balm) sem hefur kælandi, sefandi, sótthreinsandi og mýkjandi áhrif.