Menu Close

Herravörur í heimsklassa

Gentlemen’s Tonic er alþjóðlegt lúxus snyrti- og hárvörumerki sem unnið hefur til margra verðlauna. Það var stofnað 2004 í Mayfair, London og frá upphafi hefur merkið verið venslað við gæði, stíl, lúxus og eðal þjónustu meðal viðskiptavina merkisins. Hugmyndafræðin er einföld – við kappkostum að skapa hina fullkomnu andhverfu streitu og álags í nútímasamfélagi og bjóðum upp á vörur sem endurnýja, styrkja og leggja áherslu á vellíðan. Vörurnar eru allar hannaðar sérstaklega fyrir herra.

Formaðurinn var stofnaður af Guðrúnu Pétursdóttur sem er snyrtifræðimeistari og hefur unnið við fagið til fjölda ára. Guðrún hefur kennt snyrtifræði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti til margra ára. Samhliða kennslunni samdi hún ásamt samkennara sínum einu íslensku kennslubókina í faginu. Sérfræðiþekking Guðrúnar leiddi hana að Gentlemen’s Tonic vörunum sökum gæða.